Þá liggur fyrir dagskráin fyrir 17. júní 2009.
1. Seltjarnarnes: Bílum stillt upp á Eiðistorgi við Hagkaup á milli kl. 10 og 12 fh.
Brottför frá Bíldshöfða kl 9.30 stundvíslega.
Þeir sem þurfa að taka út bíla sem eru í geymslu á Höfðanum, þurfa að koma ekki seinna en kl 9.00
2. Reykjavík: Bílum stillt upp á Tjarnarbrúnni á milli kl 13 og 17.00
Ekið frá Eiðistorgi kl 12 inn að Sætúni (gamla Heimilistækjahúsið eins og undanfarin ár).
Brottför þaðan er áætluð kl 13 í fylgd lögreglu, upp Snorrabr. niður laugaveg og suður Lækjargötu.
Þeir sem ekki geta tekið þátt í dagskrárlið nr 1 , geta mætt í Sætúnið í hádeginu og tekið þátt í lið nr. 2
3. kl. 17 eða þar til að við yfirgefum Tjarnarbrúna...þá eru allir orðnir svangir....og við rennum upp á Bíldshöfða
og höldum grillpartý...hamborgarar og pylsur og kók...í boði Krúser.
Ath. EKKI verður sent út SMS og eru allir sem einn beðnir um að dreifa út fagnaðarerindinu (láta félagana vita).