Síða 1 af 1

Nýir meðlimir hér :)

InnleggInnsent: 09 Júl 2011, 17:17
frá Cougar69
Góðan daginn, ég vil byrja á að kynna okkur hjónin en við heitum Harpa og Óli og vorum að kaupa Cougar 69 af Hermanni í N1, erum búin að vera að leita fyrir okkur síðastliðin ár að gömlum bíl og þá helst Mustang árg 69-72 þar sem við erum hrifnust af þeim en okkur bauðst þessi bíll og ákváðum að slá til og sjáum ekki eftir því, bíladellan í hámarki þessa fyrstu daga og við verðum að sjálfsögðu áberandi á rúntinum það sem eftir er sumars ;). Við vonumst til að eiga skemmtilegar stundir með ykkur hvort heldur á spjallinu eða á rúntinum, alveg frábært að svona hópar séu til, kallinn er lítill tölvukall svo að konan sér um öll skrif hér ;)

Re: Nýir meðlimir hér :)

InnleggInnsent: 11 Júl 2011, 08:25
frá krúser 57
Til hamingju með bílinn, þetta er flott stykki.
Velkomin í Krúser hópinn. Hittingar eru alltaf á fimmtudagskvöldum kl 20.
Förum á rúntinn uppúr kl 21. ef veður er þannig.....annars meira kaffi og spjall fram eftir kvöldi.
Klúbburinn er með aðstöðu að Höfðabakka 9 (sama hús og Ruby Thuesday).
Fín aðstaða inni og úti.

kv.
Krúser #57
Einar

Re: Nýir meðlimir hér :)

InnleggInnsent: 13 Júl 2011, 17:28
frá Cougar69
Kærar þakkir, við munum láta sjá okkur.

B.kv.

Harpa.

Re: Nýir meðlimir hér :)

InnleggInnsent: 11 Ágú 2011, 13:34
frá Cougar69
Við höfum enn ekki fengið sendan gíróseðil en ég sendi umsókn um miðjan júlí á nafni Ólafs M. Halldórssonar, er gíróseðillinn ekkert á leiðinni svo við verðum gildir félagar í Krúser ?

Re: Nýir meðlimir hér :)

InnleggInnsent: 14 Ágú 2011, 22:28
frá K351
Sæll, venjulega leggja nýir félagar bara inn í fyrsta skiptið, eins og tekið er fram á umsóknarforminu til að þetta gangi hraðar fyrir sig.

En ekkert mál við sendum þér gíró snarlega.

Re: Nýir meðlimir hér :)

InnleggInnsent: 15 Ágú 2011, 16:47
frá Cougar69
Ok ég fattaði það ekki, takk fyrir þetta !