...og í þetta skiptið var það 1970 Pontiac GTO
Innfluttur 2005 og búinn að liggja í Keflavík síðan 2006. Flottur og vel sprækur bíll sem þarfnast smá ástar hér og þar, en mikið sóðalega er gaman að keyra þetta!!! Naut mín vel í kvöld í rigningunni og myrkrinu á Reykjanesbrautinni með 400 rokkinn í húddinu og 4 gírana í gólfinu... líkar þetta alveg æðislega vel!
Ég fékk eBay pappírana með honum og var hann tekinn duglega í gegn áður en hann kom til landsins, segir í lýsingunni að hann sé upphaflega rauður og þetta sé "numbers matching" bíll en skilst samt að heddinn séu af '71 bíl. Vélin átti að hafa verið nýupptekinn aðeins áður en hann kom til landins. Bíllinn er með close ratio 4 gíra kassa og með 3.73 drif og læsingu. Hann stóð að vísu úti í Keflavík hjá fyrri eiganda í einhvern tíma en eins og ég sagði þarfnast smá umhyggju hér og þar, ekkert sem ekki má laga.
Það sem var keypt nýtt og endurnýjað í honum áður en hann kom til landsins 2005 er:
Nýjar felgur og dekk
Nýtt í fjöðrun
Bensíntankur tekinn í gegn
Nýtt í bremsum
Nýir gúmmíkantar í kringum hurðir
Nýir speglar
Ný innrétting, toppklæðning, sæti og mælaborð.
Nýtt Flowmaster púst.
Sprautaður 2005, en undirvinnan ekki upp á sitt besta og lakkið ber þess merki.
Bíllinn er mjög sprækur og soundar flott, það verður gaman í sumar!
Skelli inn tveim gömlum myndum, tek betri við tækifæri!