Síða 1 af 1

Nýjar skoðunarreglur !!!! lesa.

InnleggInnsent: 09 Jan 2009, 09:31
frá krúser 57
Jæja þá er það komið á hreint varðandi skoðun og sektarákvæði.

Krúserklúbburinn hefur unnið að því að fá undanþágu fyrir fornbíla um að fella niður sektarákvæði það sem var fyrirliggjandi af hendi samgönguráðuneytisins, ef bílar væru ekki færðir til skoðunar innan tveggja mánaða frá tilskyldum skoðunartíma bílsins skv.síðasta staf í númeri bílsins.
Skoðunartímanum fyrir fornbíla (25 ára og eldri) var því breytt.
Niðurstaðan er þessi:

Fornbíla skal færa til skoðunar annaðhvert ár, fyrir ágúst mánuð.
Það er því óháð númeri bílsins, og enginn þarf að hafa áhyggjur af því að þurfa að fara með bílinn í skoðun um miðjan vetur, eins og menn höfðu áhyggjur af til þess að sleppa við sektir.

En auðvitað er sektarákvæðið til staðar, ef menn trassa að færa bílana til skoðunar á tilsettum tíma .....sem sagt = vera búnir að láta skoða í síðasta lagi 31. júli.

Sjá má þetta nánar á heimasíðu www.samgonguraduneyti.is

Re: Nýjar skoðunarreglur !!!! lesa.

InnleggInnsent: 16 Feb 2009, 22:57
frá kruser5
Bíleigendur Það VERÐUR að standa í skráningu bílsins,,,. FORNBill...til að sleppa við sektarákvæði. :)

Re: Nýjar skoðunarreglur !!!! lesa.

InnleggInnsent: 19 Feb 2009, 18:47
frá K351