Síða 1 af 1

17. júní 2012

InnleggInnsent: 15 Jún 2012, 20:46
frá krúser 57
Ath. að við erum klukkutíma fyrr á ferðinni þetta árið, en undanfarin ár.
Reykjavíkurborg og lögreglan vilja hafa þennan háttinn á, og sjá hvernig þetta reynist.

Nýr upphafsstaður: Núna hittumst við rétt við Háskólann í Reykjavík (Nauthólsvík).
Beygt til vinstri inn á plan, þegar komið er út úr hringtorginu.
Við verðum búnir að merkja planið....engin hætta á að villast.
Fornbílaklúbburinn verður einnig við Háskólann á öðru plani.

Nýr tími: Mæting kl 11.00 og raða okkur upp. Síðan verður ekið niður
Snorrabraut í átt að Laugavegi. Kl. 12 verður síðan ekið inn á Laugaveginn.
Fornbílaklúbbur fer fyrstur, og Krúser kemur í kjölfarið með stuðið.
Nú væri gott að allir sem hafa undir höndum Krúser- segulmerkin setji þau á bílana.

Á gatnamótum Bankastrætis og Lækjargötu skiptast hóparnir.
Krúser tekur vinstri beygju út Lækjargötu í áttina að Tjarnarbrúnni,
á meðan hinir taka hægri beygju í áttina að höfninni.

Sami endastaður: Uppstilling á bílunum verður síðan á sínum stað á Tjarnarbrúnni.
Þar mun Krúserbandið skemmta okkur, hluta úr degi.