Síða 1 af 1

N1 (Bílanaust) - Krúser

InnleggInnsent: 20 Ágú 2009, 15:18
frá krúser 57
Mætum nú allir í kvöld á planið við Gamla Bílanaust........fínn dagur. Mæta kl 18.30 til uppstyllingar.
Þurfum að vera búnir að raða upp fyrir kl 19.00

Fín tilboð í gangi....30% afsláttur af öllum vörum , nema vélhjólum.

N1 býður Krúserum sem koma á glæsikerrum sínum að gæða sér á hinum eina og sanna Tomma-borgara.
Meistarinn verður sjálfur við gasið.

Flott blús-band heldur okkur við efnið.
ofl ofl
Síðan tekinn hefðbundinn rúntur að þessu loknu....enda fer nú sumarið að syngja sitt síðasta.

Svo...upp með sólgleraugun...ræsa hreyfilinn....og þeysa af stað !
KOMA SVO.................................................

p.s. Höfuðstöðvar Krúser á Bíldshöfða verða því lokaðar í kvöld. !!!

Re: N1 (Bílanaust) - Krúser

InnleggInnsent: 21 Ágú 2009, 10:43
frá krúser 57
Takk fyrir samveruna í gærkveldi.
Þetta var frábær kvöldstund....gerist varla betri.
Og bestu þakkir til allra myndasmiða sem sendu inn myndir af uppákomunni.

Með blús í eyrunum.....grilllykt í nefinu.....og fullan tank af bensíni = góð blanda !!!