Síða 1 af 1

Afsláttur hjá Vélaverkstæðinu Kistufelli

InnleggInnsent: 09 Jan 2009, 00:10
frá K351
Vélaverkstæðið Kistufell ehf. Tangarhöfða 13 gefur félögum í Krúser 10% afslátt af vinnu og 15% á efni. Til að fá afsláttinn þarf að framvísa félagsskírteini.

Vélaverkstæðið Kistufell sérhæfir sig í vélaviðgerðum. Þar er hægt að fá sveifarása rennda, blokkir boraðar, hedd þrýstiprófuð og plönuð. Þeir renna ventla og ventilsæti og geta einnig skift um um ventilsæti og stækkað þau.

Verkstæðið er vel búið sérhæfðum tækjum til þessarar vinnu.

Þeir eiga einnig mikið af varahlutum á lager og sérpanta það sem ekki er til.

Vélaverkstæðið Kistufell ehf.
Tangarhöfða 13
110 Reykjavík

Sími 577 1313

kistufell@kistufell.com

Http://www.kistufell.com/